Þemavinna
Allt um þemavinnuÞemavinna er rannsóknarvinna. Rannsóknarvinna gengur út á að kynna sér vel eitthvert efni sem maður þekkti ekki áður og fara í saumana á því[1]. Markmiðið með þemavinnu er að læra að beita faglegum, viðeigandi aðferðum vísindamanna við rannsóknina. Í þemavinnu er ætlast til að nemendur vinni sjálfstætt við að leita svara við spurningum sem þeir hafa áhuga á eða efni sem þeir fá úthlutað. Rannsóknin getur verið að kanna sjálfvalið efni eða efni sem úthlutað er af einhverjum öðrum. Í daglegu lífi er algengt að menn rannsaki efni sem atvinnurekandinn telur mikilvægt að verði rannsakað. Rannsóknarvinnu þarf að vinna skipulega og á ákveðinn hátt.
|
. |
Skoða
|
