ÞAÐ SEM ÍSLENSKUSKÓLINN BÝÐUR UPP Á

STÖÐUMAT FYRIR ÞINN SKÓLA
Grunnskóli
Stöðumat á orðaforða og greiningarvinna. Markviss kennsla byggir á skýrri sýn á þarfir nemenda. Við aðstoðum við mat á orðaforða nemenda, úrvinnslu gagna og myndun fyrstu Íslenskuskólahópa.
Aðrir skólar og stofnanir
Kennsluhættir Íslenskuskólans og kennsluefni
NÁMSKEIÐ FYRIR KENNARA
Öflug orðaforðakennsla byrjar með Íslenskuskólanum. Hagnýtt námskeið fyrir kennara og/eða kennsluráðgjafa með aðferðum sem auðvelt er að innleiða í skólastarfið. Íslenskuskólamappa með kennsluefni og leiðbeiningum er innifalið í námskeiðinu.


KENNSLULEIÐBEININGAR OG KENNSLUEFNI
Kennsluleiðbeiningar
Kenndu af öryggi með skýrum leiðbeiningum. Með hverju orðaforða myndaspjaldi fylgja ýtarlegar kennsluleiðbeiningar sem auðvelda undirbúning og styðja við markvissa orðaforðakennslu.
Kennsluefni
Litrík og myndræn orðaforðspjöld í A3 eru notuð í Íslenskuskólanum, ásamt fjölbreyttum kennsluháttum, verkefnum og námsmati sem styðja við íslenskunám og virka þátttöku nemenda.
