top of page

UM ÍSLENSKUSKÓLANN

Íslenskuskólinn í grunnskólum á Íslandi

Er ætlaður fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál og sérstaklega þá nemendur sem tala erlent tungumál heima. Hann er fyrir nemendur sem eru fæddir á Íslandi, nýlega komnir nemendur og nýkomnir frá öðrum löndum. Áhersla er lögð á að kenna fjölbreyttan og hagnýtan orðaforða, en það eru orð sem koma oft fyrir í námsbókum en heyrast sjaldan í töluðu máli. Í efstu bekkjum unglingadeildar er markmiðið að þeir nemi sértækan námsorðaforða.

 

Við kennsluna í Íslenskuskólanum er notast við falleg og myndræn myndaspjöld í A3 til að
læra orðin og festa í minni með fjölbreyttum kennsluháttum eins og málfræði, talað mál og hlustun, ritun og lestur. Íslenskuskólinn er kenndur í fjölmennum kennsluhópum með allt að 15 nemendum í einu. Hóparnir eru margir því Íslenskuskólinn er á öllum skólastigum alveg frá 1. bekk og upp í 10. bekk. 
Markmiðið Íslenskuskólans er að efla orðaforða til betri námsárangurs í öllum námsfögum skólans og skapa jöfn tækifæri til framhaldssnáms.

 

Íslenskuskólinn í leikskólum

Hentar einnig fyrir leikskóla þar sem orðaforðinn er kenndur með myndaspjöldum í töluðu máli til að efla og auðga orðaforða leikskólabarna. Hann er fyrir öll leikskólabörnin á deildinni, bæði þau sem eru með fjölmenningarlegan bakgrunn og börn sem eiga íslenska foreldra. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun og búa öll börn betur undir grunnskólanám. Við viljum sýna stuðning við máltöku barna, málþroska og félagsleg samskipti. 

 

Íslenskuskólinn í framhaldsskólum landsins

Hentar fyrir ÍSAT nemendur sem eru nýkomnir eða nýlega komnir til Íslands þar sem orðaforðinn er myndrænn orðaforði og skiptir því ekki máli frá hvaða landi eða hversu lengi nemandinn er búinn að vera á Íslandi. Þar af
leiðandi gefur það góðan árangur að kenna Íslenskuskólann á móti almennri ÍSATkennslu til að bæta námsárangur í öðrum námsgreinum framhaldsskólans.

 

Atvinnulífið

Myndrænu orðaforðaspjöldin henta vel fyrir sértæka íslenskukennslu til dæmis fyrir
atvinnumarkaðinn þar sem lögð er áhersla á orðaforða atvinnugreinarinnar sem nýtist best í starfi starfsmanns. Orðaforðinn eflir íslenskan orðaforða námsmanna, bætir tala mál í Íslensku, styrkir samskiptafærni á vinnustað og þeir upplifa meira öryggi á vinnustað. 

Verðlaun til Ragnheiðar Gísladóttur fyrir Íslenskuskólann
Menntaverðlaun fyrir Íslenskuskólann

TEYMIÐ

Ragnehiður Gísladóttir, stofnandi Íslenskuskólans

Ragnheiður Gísladóttir

Stofnandi og framkvæmdastjóri

Lena Rut Ævarsdóttir

Lena Rut Ævarsdóttir

Markaðs- og hönnunarstjóri

Lena Ósk Guðlaugsdóttir

Lena Ósk Guðlaugsdóttir

Verkefna- og vefumsjónarfulltrúi

ÍSLENSKUSKÓLINN

© 2026 by Íslenskuskólinn. Powered and secured by Wix.

bottom of page