Innleiðing Íslenskuskólans

Íslenskuskólinn byggir á markvissri orðaforðakennslu sem hefur það að markmiði að efla íslenskufærni nemenda með íslensku sem annað mál. Sérstök áhersla er á nemendur sem eru fæddir á Íslandi og tala annað tungumál heima en einnig eru nýkomnir og nýlega komnir nemendur. Íslenskuskólahóparnir eru fjölmennir sérkennsluhópar frá 7-15 nemendum í hóp. Reynslan af þróunarverkefni Íslenskuskólans sýnir að með skipulagðri orðaforðakennslu, endurtekningu ákveðinna orða í lotum með fjölbreyttum kennsluaðferðum hafa nemendur tekið skýrum framförum á stuttum tíma. Þeir koma inn með 60% kunnáttu á orðaforða og eftir lotuna sem er í 6-8 kennslustundir eru þeir með að jafnaði 95-100% kunnáttu á orðaforðanum sem var fyrirlagður.

Námskeiðið er ætlað ÍSAT-kennurum grunnskóla á Íslandi og kennsluráðgjöfum sveitarfélagsins ef þess er óskað. Áhersla er lögð á hagnýtar kennsluaðferðir Íslenskuskólans sem auðvelt er að innleiða í daglegt skólastarfsins.

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum skýran fræðilegan grunn, hagnýt verkfæri og leiðir til að byggja upp markvissa kennslu orðaforða með fjölbreyttum kennsluaðferðum til að festa orðin í minni  nemanda með orðaforða í orðaþrepi 2 og fyrir elstu bekki er orðaþrep 3 sem er sértækur námsorðaforði.

Kennsluhættirnir eru þeir að notast er við falleg myndræn og stór myndaspjöld. 23-25 orð eru lögð inn í lotu og til að festa þau í minni eru notaðar fjölbreyttar kennsluaðferðir eins og málfræði,  talað mál og hlustun, ritun o.fl. Íslenskuskólinn stuðlar einnig við aðferð að virkja tvítyngdra nemendur í námi með Jákvæðum aga og Uppeldi til ábyrgðar.

Ávinningurinn:

Fyrir nemendur

·         Aukin íslenskufærni og markviss uppbygging orðaforða

·         Betri lesskilningur og meiri orðaforði í töluðu máli

·         Aukið sjálfstraust í námi og sterkari í félagslegum samskiptum með auknum orðaorða

·         Meiri virkni og þátttaka í kennslustundum og skólastarfi

·         Bætt tækifæri til námsárangurs í ólíkum námsgreinum og til framhaldsnáms

Fyrir kennara

·         Skýrari sýn á hvernig styðja má nemendur með íslensku sem annað mál

·         Hagnýtar og markvissar kennsluaðferðir sem nýtast í daglegri kennslu

·         Betri verkfæri til að kenna orðaforða markvisst

·         Aukið öryggi í að skipuleggja kennslu fyrir fjölbreyttan nemendahóp

Fyrir skólastarf

·         Miklu fleiri ÍSATnemendur sem koma í sérkennslu svo um munar

·         ÍSAT nemendur sem eru undanþegnir dönsku í 7.-10. bekk koma í Íslenskuskólann í stundatöflunni. Þá er ekki verið að minnka aðra kennslu á móti.

·         Samræmdari vinnubrögð í stuðningi við nemendur með íslensku sem annað tungumál

·         Betra samstarf milli sérkennslu og almennrar bekkjarkennslu

·         Auknar líkur á því að stuðningur við nemendur verði markviss, skipulagður og sjálfbær

·         Sterkari grunnur fyrir innleiðingu kennsluaðferða sem gagnast skólanum til lengri tíma

·         Betri árangur í matsferli (samræmdum prófum) og PISA könnunum

·         Íslenskuskólinn er orðaforðaskóli frá 1. – 10. Bekkjar og er því langtímalaus með árangri


Fyrirspurnir, pantanir á fyrirlestrum eða óskir um verðskrá sendist á Islenskuskolinn@Islenskuskolinn.is