Framvegis hefur innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans
5 days ago
1 min read
Það er okkur mikil ánægja að segja frá því að Framvegis miðstöð símenntunar hefur hafið innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans. Starfsfólk fræðslumiðstöðvarinnar sótti námskeið þar sem þeir kynntust aðferðum og námsefni Íslenskuskólans með það að markmiði að efla markvissa og fjölbreytta orðaforðakennslu fyrir námsmenn sem læra íslensku sem annað tungumál.
Með innleiðingu Íslenskuskólans tekur Framvegis mikilvægt skref í átt að því að skapa námsmönnum með íslensku sem annað tungumál enn betri tækifæri til að efla íslenskukunáttu sína og nýta hana í daglegu lífi.
Við óskum Framvegis innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi innleiðingu og árangri starfsins!





Comments