Þjórsárskóli hefur innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans
7 days ago
1 min read
Það er okkur mikil ánægja að segja frá því að Þjórsárskóli hefur hafið innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans. Kennarar skólans sóttu námskeið þar sem þeir kynntust aðferðum og námsefni Íslenskuskólans með það að markmiði að efla markvissa og fjölbreytta orðaforðakennslu fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað tungumál.
Með innleiðingu Íslenskuskólans tekur Þjórsárskóli mikilvægt skref í átt að því að skapa nemendum með íslensku sem annað tungumál enn betri tækifæri til náms og þroska.
Við óskum Þjórsárskóla innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi innleiðingu og árangri starfsins!





Comments