top of page
Search

Reykholtsskóli hefur innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans

Nov 14
1 min read

Það er okkur mikil ánægja að segja frá því að Reykholtsskóli hefur hafið innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans. Kennarar skólans sóttu námskeið þar sem þeir kynntust aðferðum og námsefni Íslenskuskólans með það að markmiði að efla markvissa og fjölbreytta orðaforðakennslu fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað tungumál.


Með innleiðingu Íslenskuskólans tekur Reykholtsskóli mikilvægt skref í átt að því að skapa nemendum með íslensku sem annað tungumál enn betri tækifæri til náms og þroska.


Við óskum Reykholtsskóla innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi innleiðingu og árangri starfsins!



 
 
 

Comments


ÍSLENSKUSKÓLINN

© 2026 by Íslenskuskólinn. Powered and secured by Wix.

bottom of page