Snælandsskóli hefur innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans
Nov 12
1 min read
Það er okkur mikil ánægja að segja frá því að Snælandsskóli hefur hafið innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans. Kennarar skólans sóttu
námskeið þar sem þeir kynntust aðferðum og námsefni Íslenskuskólans með það að markmiði að efla markvissa og fjölbreytta orðaforðakennslu fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað tungumál.
Með innleiðingu Íslenskuskólans tekur Snælandsskóli mikilvægt skref í átt að því að skapa nemendum með íslensku sem annað tungumál enn betri tækifæri til náms og þroska.
Við óskum Snælandsskóla innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi innleiðingu og árangri starfsins!





Comments