Formleg afhending Íslenskuskólamöppunar til stjórnenda í Grunnskólanum Hellu
Nov 1
1 min read
Updated: Nov 3
Í tilefni innleiðingarinnar afhenti Íslenskuskólinn Grunnskólanum Hellu sérstaka Íslenskuskólamöppu sem inniheldur myndræn orðaforðaspjöld, fjölbreytt kennsluefni og hagnýtar leiðbeiningar fyrir kennara. Námsefnið byggir á markvissri orðaforðakennslu þar sem áhersla er lögð á endurtekningu, samræður, málfræði, ritun og virka þátttöku nemenda. Með þessum aðferðum er leitast við að festa nýjan orðaforða í minni og styrkja hæfni nemenda til að nýta íslenskuna í námi og daglegum samskiptum.





Comments