Víkurskóli hefur innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans
Nov 3
1 min read
Updated: Nov 4
Það er okkur mikil ánægja að segja frá því að Víkurskóli hefur hafið innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans. Kennarar skólans sóttu námskeið þar sem þeir kynntust aðferðum og námsefni Íslenskuskólans með það að markmiði að efla markvissa og fjölbreytta orðaforðakennslu fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað tungumál.
Með innleiðingu Íslenskuskólans tekur Víkurskóli mikilvægt skref í átt að því að skapa nemendum með íslensku sem annað tungumál enn betri tækifæri til náms og þroska.
Við óskum Víkurskóla innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi innleiðingu og árangri starfsins!





Comments